12.12.13

nýjungin


Ég er mjög slæm með það að fresta hlutum. Núna bíður til dæmis heilt fjall af heimavinnu þess að ég sinni því en í staðinn fyrir að byrja klifið, þá finnst mér þetta vera upplagður tími til þess að endurlífga bloggið mitt. Þannig að hér erum við.

Um daginn var ég, eins og svo oft áður, á ferð um borgina að leita að hlutum sem ég þarf að nota í skólanum. Í þetta skiptið beindist leitin að ákveðinni gerð af pennum sem var nauðsynlegt að eignast fyrir kennslustund daginn eftir. Ég hélt því út í kuldann þegar skólanum var lokið þennan dag með úlpuna rennda upp í háls, hökuna keyrða ofan í trefilinn og þunga skólatöskuna á öxlinni. Eftir að hafa gengið marga kílómetra og fengið þau svör um að pennarnir væru uppseldir (eða þannig túlkaði ég alla vega handapatið) í hverri búðinni á fætur annarri, þá kláraðist þolinmæðin mín. Ég ákvað því að streitast á móti vindinum og halda heim á leið.
 Ég var ekki komin langt þegar ég rakst á þessi orð:



Mér fannst smá kaldhæðnislegt að sjá þessi skilaboð, svona í ljósi þess að ég hef varla gert neitt annað en að upplifa eitthvað nýtt síðan ég flutti hingað. Eftir nokkurra mínútna göngu var ég þó búin að íhuga þetta betur. Ég er algjörlega komin inn í fasta rútínu sem breytist lítið á milli daga. Þar með eru upplifanirnar ekki lengur nýjar, heldur orðnar hversdagslegar. Það er orðið svo venjulegt að upplifa þessa ólíku menningu hér að hún hefur ekki jafn mikil áhrif á mig og hún gerði í upphafi. 
Hvert er ég að fara með þessu? Jú, þið eruð að fara að komast að því.

Á sama tíma og þessar hugsanir voru á sveimi í kollinum á mér, kom sérlega andstyggilegur vindgustur og smeygði sér beint að hálsinum mínum. Ég rak augun í einn af fatasölustöndunum sem eru hér út um allt, bölvaði vindinum í huganum og fór beinustu leið og keypti mér rúllukragabol.

Ég er ekki viss um að þið gerið ykkur almennilega grein fyrir því hversu stórt mál þetta er fyrir mig.. alla vega ekki þau ykkar sem hafa ekki þurft að hlusta á mig flytja mjög nákvæma og vel ígrundaða hatursræðu sem beinist að rúllukrögum. Mér líður smá eins og ég sé búin að svíkja allt sem ég trúi á, en á sama tíma er mér eiginlega alveg sama af því að í augnablikinu er mér þægilega hlýtt á hálsinum - tilfinning sem ég er ekki alveg búin að venjast ennþá. 


Þessi sjálfsmynd sýnir greinilega að ég er enn á varðbergi gagnvart því að rúllukraginn muni á einhverjum tímapunkti reyna að kyrkja mig en þetta er allt saman að koma og ég hef fulla trú á því að við munum verða bestu vinir. Ég er jafnvel að íhuga það að bjóða honum með heim til Íslands um jólin en ekki segja honum frá því - ég vil að það komi á óvart.

3 ummæli:

  1. Ah þetta blogg er hér með í upphaldi hjá mér af öllum þínum bloggum. Einlægt og fínt! Þú ert fín:)
    Kann að meta speglamyndaþróun okkar í fötum hvors annars - pilsið er afar huggulegt við rúllarann( fyrirgefðu orðavalið...þar sem "rúllarar" hafa hingað til ekki verið í uppáhaldi hjá þér fannst mér yndislega kaldhæðnislegt að nota svona ógeðslegt og pirrandi orð yfir þá - yfir nýju fjárfestinguna þína)!
    Annars "brá" mér nú bara yfir þessu upptæki þínu að ákveða að kaupa bol(þakkaðu mér fyrir að hafa ekki sagt rúllari þarna aftur..) af næsta götusala! Venjulega rútínan felur nefnilega í sér að reyna að forðast afskipasemi þeirra - nýtt! Þetta nýja líf :)

    SvaraEyða
    Svör
    1. Rúllari, haha oj.. og núna mun ég alltaf hugsa um þetta ljóta orð í hvert skipti sem ég ætla að vera kúl í bolnum mínum.. Takk.

      Eyða
  2. Ég átti einu sinni bláan rúllukragakjól úr teygjuefni, þú gætir kannski endurlífgað hann?
    En annars finnst mér þetta bara fara þér vel og örugglega hrikalega gott í kuldanum. Myndi nú samt hafa skæri við höndina ef að hann tæki upp á því að reyna að kyrkja þig, allavegana svona fyrst um sinn. Maður veit aldrei upp á hverju þessir rúllarar (btw elska þetta orð) taka upp á, utanáliggjandi virðast þeir vera mjúkir og yfirvegaðir en hef heyrt að þeir geti þrengt að og þá eru nú góð ráð dýr.
    En gangi þér vel með þessu góðu kaup og eins gott að þú sért að koma heim í smákökuát þar sem að mér sýnist þú vera að hverfa!, eða er þetta kannski rúllarinn? þrengir svo að hálsi þínum að þú getir ekki borðað?.. baa held að þetta sé efni í eina góða hryllingsmynd "Hefnd Rúllarans" (svona þar sem þú hefur blótað þeim mikið í gegnum tíðina) ;)

    SvaraEyða